Magna Ýr

Brostu, það fer þér betur ;)

16.03.2008 08:32:55 / magnayr

Þá er maður kominn til Finnlands:)

Jæja þá erum við komin til Finnlands :) Ferðin gekk mjög vel út, þrátt fyrir að við höfum verið þrengstu vél sem ég hef á ævi minni stigið fæti inní.. en maður steinsofnaði svo þetta var ekki lengi að líða :) Þegar við komum til Finnlands fórum við beint uppí keilusal að skila töskunum okkar og skoða salinn. VÁVÁVÁ... þessi salur er bara flottur og þvílíkt gott að spila þarna, tókum æfingu í gær, reyndar ekki á sama olíburði og verður í mótinu. Eftir æfingun í gær skelltum við okkur niðri bæ til að versla, en fundum ekki neitt... ljótasta HM búð sem ég hef séð á minni ævi... sáum samt reyndar svartan Superman dansandi á línu, gaman að segja frá því :D
Erum mikið búin að vera sitja niðri og spila gúrku og spjalla við krakkana frá hinum þjóðunum !

Núna var ég bara að koma úr morgunmat(sem var ekki góður)... við erum ekki að fara á official practice fyrr en 17:30, þannig við verðum bara í tjillinu í dag, förum uppí sal og spjalla við fólkið og svona :)

Allavega þá ætla ég ekki að hafa þetta lengra ...
(mamma mín það koma myndir seinna fyrir þig;) lofjú)

Hafi það gott,

Kv.Magna Ýr Hjálmtýsdóttir


» 1 hafa sagt sína skoðun

11.03.2008 01:16:43 / magnayr

4 (eða 3) dagar í EM :D

Já það eru 4 dagar í EM !!!  je minn hvað ég hlakka til.. fór með kúlurnar mínar til borarans míns í gær að láta laga þær svo allt er að verða reddí fyrir ferðina.. Ég er reyndar lítið búin að geta æft mig undanfarið því ég náði mér í einhverja flensu og hún er barasta ekkert að fara !! Eeennn ég bið bara bænirnar á kvöldin og vonandi að þeir þarna uppi hjálpi mér að ná þessu úr mér fyrir mótið ... ;)

Afmæli hjá Maju og Beggu var um helgina !! :) Þakka kærlega fyrir mig.. Var ekkert smá gaman að sjá alla krakkana á laugard. var ekki búin að sjá strákana heeiillengi...

Skólinn er alltaf sá sami.. núna er kosningarvikan í fullum gangi og básar komnir útum allt niðrá Marmara og myndast skemmtileg stemmning við það... kennararnir eru ekkert að slaka á prófum eða skilaverkefnum.. Jii minn hvað ég hlakka til að komast aðeins í burtu frá þessu skeri og gera það sem ég dýrka mest !! :D

Grikkland :D

Allir að koma inn á opnunarhátíðinni.. ég var fremst og þurfti endilega að fá hláturskast þegar einhver greyið stelpa labbaði vitlausan hring inn .. var mjög fyndið samt haha

Tröllabarnið frá Estonia sem var alltaf með plömmer.. (lengst til hægri) ætli við lendum með henni aftur á setti ??

Vonandi spilum við ekki klukkan 9 núna svo við þurfum ekki að vakna kl. 6 alla morgna og fólk þurfi ekki að sjá þessa myglu eins og þessa ;)

Anyways.. þá verður Krut beibí með tölvuna sína svo ég hendi hinn hérna hvernig gengur =) Ég ætla að fara koma mér í háttinn =)

Góða nótt

Kv.Magna Ýr Hjálmtýsdóttir
 

» 1 hafa sagt sína skoðun

29.02.2008 12:33:40 / magnayr

2 vikur :)

Hehe núna byrja ég næstum öll blogg á að afsaka hversu langt það er síðan ég hef bloggað en allavega .. síðustu vikur eru búnar að vera klikkaðar, kennararnir eru búnir að vera missa sig í skilaverkefnum og prófum og síðan erum við búin að æfa eins og brjálæðingar næstum alla daga fyrir EM.. Enda bara 2 vikur í þetta.. úff maður fer að verða stressaður en samt drullu spenntur :D

Íslandsmeistaramótið er í fullum gangi núna, mér gekk nú ekkert mjög vel =( en ég komst í milliriðil svo maður verður bara að gera betur þar !! :)

Í gær var ég valin til að fara með A-landsliði kvenna til að keppa á EM í sumar sem verður haldið í Danmörku, Odense :) Sem er náttúrulega bara geggjað..
 
En jæja ætlaði bara að henda smá fréttum inn :)

Góða helgi :)

Kv.Magna Ýr

» 2 hafa sagt sína skoðun

03.02.2008 23:29:04 / magnayr

Kisa mín 20 ára :)

Langaði bara að óska henni Kisu minni innilega til hamingju með 20 ára afmælið... Vona að næstu ár verði jafn góð og þau sem liðin eru sæta mín..
Hún hélt afmælið sitt með trompi síðustu helgi með honum Ása okkar og var ekkert smá gaman .. :) Síðan bauð hún fjölskyldunni, okkur stelpunum og Stebba kallinum í kökur og góðgæti í kvöld.. ekkert smá gott, átum öll yfir okkur... Takk æðislega fyrir mig elskan...

alltaf hress þessi elska :D

hehe kúl ... þarf ekki að spurja að því ;)

Við allar ;*

Þessi hugsar vel um hana kisu mína;) sæta par :D

Besta vinkona mín já :D

Enn og aftur til hamingju snúlla.. síðan er það bara bústaður um helgina !!! ;) þá höldum við sko rækilega uppá þetta...

Þín vinkona,

Magna Ýr :D

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.01.2008 14:52:29 / magnayr

=)

Jæja þá er orðið soldið síðan síðast... Allavega þá er búið að vera nóg að gera hjá mér ... er á keiluæfingum alladaga nema föstud. og síðan fer maður í ræktina eftir á og maður kemur heim kl.11 dauður !!

Ekkert smá stutt í að við förum á EM.. Við Karen erum búnar að finna verslunargötu rétt hjá hótelinu ;) hehe.. ekki lengi að þessu... 

Allavega þá var ég bara mjög róleg í gær, var heima að spila rommý og tveggja manna vist með móður minni ;) Eru landsliðsæfingar þessa helgina og við Karen þurfum að æfa með unglingaliðinu og A-liði kvenna.. svo það eru 6 tímar á laugard. og sunnud. :) höfum bara gott af því... 

Síðustu helgi héldu Ási og Kisa uppá 20 ára afmælið sitt, var ekkert smá gaman og bara takk æðislega fyrir mig :) 

afmælisbörnin með ræðu :D

 

Hafið það gott um helgina... =)

 

Kv.Magna Ýr Hjálmtýsdóttir 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.01.2008 20:13:21 / magnayr

10 janúar

Ætla byrja á því að óska henni Birnu minni til hamingju með 19 ára afmæli og Rósu danafara sem átti afmæli í gær ;)

Hérna eru þær þessar skvísur ;)

Allavega þá er allt voða gott að frétta af mér og mínum.. móðir mín fékk bónorð á nýársdag, svo það verður brúðkaup á mínu heimili í haust :) hlakka ekkert smá til.. Núna er öll fjölskyldan komin í átak fyrir brúðkaupið sem er bara helv. gott :D

Photo aww elska svona flotta brúðarkjóla :D

Annars er voðalega lítið að frétta.. skólinn byrjaður á fullu, keiluæfingar fyrir EM eru byrjaðar, liðið var tilkynnt í síðustu viku og erum við Karen báðar í hópnum :) verður geggjað...

Fórum í bootcamp í leikfimi í dag og djöfull sem þetta tekur á.. vorum öll kósveitt og sexy :D hehe .. en manni leið drullu vel eftir á samt !! :) og vona ég bara að það verði meira gert af þessu í leikfimistímum...

Myndirnar frá áramótunum fara bráðlega að koma.. Kisa á eftir að henda þeim inn síðan skelli ég þeim hingað yfir..

Hitti Eirík bróðir í gær og Fanný, gaman að sjá ykkur elskurnar :) og hafið það gott útí DK !!

Ætla ekkert að hafa þetta mikið lengra... lærdómurinn kallar !

Hafið það gott

Kv.MagnaÝrHjálmtýsdóttir

Ein gömul og góð í lokin !! :D


» 1 hafa sagt sína skoðun

04.01.2008 15:30:11 / magnayr

Árið 2007 - Myndir

Jæja þá er árið 2007 búið og 2008 gengið í garð og segi ég bara gleðilegt nýtt ár og vonandi höfðu þið það sem best um jólin ;)

Það sem stóð mest uppúr árið 2007 var eflaust

Evrópumeistaramótið í Grikklandi :

Apr 5, 2007

Við andri úldin á flugvellinum eftir langa bið að gera súkkulaði auglýsingu

töskurnar hans hafliða týndust og þetta fékk hann í staðinn ;) hehe..

Apr 7, 2007

Ísland víví :D

Ég og Simen elska.. :)

Ég og Bjarninn minn á lokahófinu ;)

Ég og liðið mitt Valkyrjur urðum Deildar-Bikar og Íslandsmeistarar :D Og settum 3 ný íslandsmet :)

 

Síðan skelltum við Karen okkur á DBU youth cup í Berlín.. spiluðum keilu, djömmuðum og versluðum .. og var bara helvíti skemmtilegt :D

Ég fyrir utan dómkirkjuna

Við á leiðinni á djammið :)

Mattias og Karen

Karen að mongóast á leiðinni í salinn

Svíþjóðar og Danmerkuferðin :) Ég gisti hjá Anders vini mínum í DK og við hittum Maju og Kára nokkur kvöld...

Maja,Kári,Anders,Anders og Jakob

Því miður þá var ég ekkert með krökkunum í sumar =( gat ekki upplifað öll djömmin, þjóðhátið, Tyrkland með þeim.. en við munum  bæta úr því næsta sumar ;)

En við vorum dugleg að hittast og djamma núna í vetur, þó við stelpurnar höfum ekki verið nógu duglegar að hittast allar og vera með stelpudjömm eins og við erum vanar, þá vona ég að það breytist á þessu ári ;) áramótin voru náttlega geðveik.. Kirstín kemur með myndir frá þeim síðar .. =)

Stelpudjamm hjá Sessý.. standa alltaf fyrir sínu ;)

Árshátíð MK.. - skemmtum okkur öll mjög vel ;)

Par ársins 2007 ;)

alltaf stemmning á strákunum

Heitar skvísur á dansgólfinu .. ;) - bjórkvöld

Harðir tappar ;)

Viktor með gítarinn við hönd eins og honum einum er lagið :)

 Þá vil ég bara segja takk fyrir gott ár og vona að næsta verði jafnvel betra;)

Kv.Magna Ýr


» 2 hafa sagt sína skoðun

27.12.2007 23:07:23 / magnayr

Gleðileg jól

Kisa kemur heim á morgun :D:D Get ekki beðið að fá þennan bjána heim..
Hahahaha ég og Kisa fyrir 2 árum
Ég og Kisa núna :D

hehe hversu næs er þetta:)

Allavega langaði mig bara að segja gleðileg jól og vonandi eru þið búin að hafa það mjög gott yfir hátíðarnar :)

Kv.Magna Ýr


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.12.2007 18:18:06 / magnayr

6 dagar í jólin ! :)

Jæja þá eru öll prófin búin, finally ! Rek og þýska gengu hræðilega.. hvað Tómas Sölvason var að pæla þegar hann bjó til Rek prófið langar mig mikið að vita !! En þetta kemur allt í ljós á fimmtudaginn ... :)

Það var tekið vel á því um helgina..einum of kannski... föstud. var frekar slappur en laugard.djammið voar mjög skemmtilegt ! :)

Jólaball Versló var í gær og þetta var eitt af skemmtilegustu böllum sem ég hef farið á ! :D Palli klikkar ekki ;) Takk fyrir pylsuna Karen mín ;* hehe...

Núna er maður byrjaður að vinna.. ég er bæði að vinna hjá Byko og Kynningum. Mjög gaman að vinna hjá Kynningum, er að vinna með Kisu,Huldu,Stebba,Magga, Viktori, Daniel M. og arnari...:D Gerir vinnudaginn fljótan að líða þegar maður er að vinna með skemmtilegu fólki :D

En ætla að fara taka til inni hjá mér...

Hafið það gott,

Kv.Magna Ýr

May 31, 2007

 

Jeijj skemmtilegt kvöld í Berlín ;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

13.12.2007 18:31:44 / magnayr

Síðasti lærdómsdagurinn !! :D

Já svei mér þá.. þessi stormur ætlar ekkert að hætta.. !! :$

Núna er reyndar kominn snjór og vona ég að hann haldist :) samt ekkert mikill, bara smá ... svo langt síðan það hafa verið hvít jól... mér finnst ekkert fallegra en að borða á jólunum og snjókomma úti :D

En Hafþór kallinn átti afmæli um daginn, til hamingju með það.. hann er einmitt að koma heim núna um helgina.. verður gaman að sjá hann aftur =)

En já 1 próf eftir !!! Ég á erfitt með að halda einbeitingunni hérna við að læra..

Próflokadjamm á morgun.. og við Kirstín að rjúfa 5 vikna drykkjubindindinu okkar!! :D

Skál fyrir þvi !! :D

Viktor á afmæli í dag... Innilega til hamingju, loksins orðin 19 ára peyi ! :D

haha hér er strákurinn hress á Marmaris :)

 En ég ætla að halda áfram með lærdóminn...(síðasta sinn sem ég segi þetta fyrir jól) :D

Kv.

 Magna Ýr:D

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.12.2007 18:51:05 / magnayr

1 próf eftir !!! :D:D:D

Veiiiiii... !!! Það er bara 1 próf eftir !! vávívává ;) Eftir prófið í gær ætlaði ég að fara beinustu leið heim að sofa, því ég var bara búin að sofa 2 tíma um nóttina.. ég hlakkaði ekkert smáá en síðan gat ég bara ekkert sofið !! reyndi í 4 tíma, lá uppí sófa en neeiii ...

Klukkan hálf 6 skelltum við Valkyrjur okkur uppá Skaga.. veðrið var fínt og unnum við leikinn 16,5 - 3, 5 .. hefðum nú ekki átt að missa svona mörg stig en engin af okkur var að spila eitthvað vel svo í rauninni var þetta ágætt bara... Þegar við vorum á leiðinni heim skall á þetta skelfilega veður... án gríns ég var drulluhrædd... hélt að bíllinn ætlaði bara að fjúka .. við héldum nú samt að þetta væri í lagi og héldum áfram, en allt í einu kom þessi svaka kviða og bíllinn næstum búinn að velta þá ákváðum við að fara bakvið einhverja bensín stöð í "skjól".. sem betur fer fattaði Lísa að vink. hennar væri nýflutt á Kjalarnesið svo hún bjargaði okkur og vorum við fastar þar í 4 tíma í þessu kreisi veðri !!

Okkur Dagný leiddist svo að við ákváðum að skella okkur út í þetta veður meðan við vorum að bíða að fá að komast í bæinn... ég hef sjaldan hlegið svona mikið.. það var bara erfitt að standa í lappirnar útaf vindinum og rigningunni..

En jæja.. ég ætla að fara læra.. sit uppá hlöðu og er ekki búin að gera neitt síðan ég kom hingað :$

Til hamingju allir sem eru búnir í prófum og hinir ... það er lítið eftir !!!

Kv.Magna Ýr

Ein gömul af mér og Hafþóri þegar var verið að vígja mig inní landsliðið !


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.12.2007 21:14:11 / magnayr

blaahh !!

Af hverju er það alltaf þannig að ef það þarf eitthvað að gerast hjá manni þá þarf allt að gerast á sama tíma !!

Síðustu dagar eru búnir að vera erfiðir og leiðinlegir ! En gaman samt í gærkvöldi, við Kisa fórum útað borða og í jólagjafarleiðangur, á meðan hún keypti örugglega 5 gjafir eða eitthvað þá fann ég ekki eina.. en samt gat ég fundið mér fullt sem mig langaði í.. buxur, stígvél, jakka, kjól og blaahh...

Jamm og já.. fór í klippingu í dag og klippti á mig topp !! Finnst það ekki flott :/ á örugglega bara eftir að venjast því..

En núna eru aðeins 2 próf eftir !! :D:D og það verður svo gaman næstu helgi.. það eru allir að fara djamma.. get ekki beðið !! :D þá verða 5 vikur síðan við byrjuðum á þessu drykkjubindindi..

Mamma er með eitthvað kreisi partý hérna.. fullt af kellingum, hlátur,mjálm, gól, dans, músik og brjáluð læti... held ég þurfi að forða mér í burt.. hehe...

Allavega góða helgi :)

Kv.Magna Ýr:)


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.12.2007 17:57:48 / magnayr

....

Vá án gríns sumir kennarar geta verið svo fkn freðnir í hausnum !! Ég fór í þýskupróf í dag sem var bara drullu erfitt, eru allir í sjokki eftir þetta... Kom bara næstum allt öfugt við það sem hún frk.Ragna Kemp vink. bekkjarins var búin að segja við ættum að leggja áherslu á. Kæmi mér ekki á óvart ef ég fengi auka hvítt blað með einkunnarspjaldinu þetta árið !! :^)

En þá massar maður þetta bara í endurtekningarprófunum í Janúar ef svo færi, sem ég vona samt svo innilega ekki því ég væri alveg til í að vera stúdent í  þessu leeeeiiiiðinlega tungumáli ! 

 

En jæja þá eru 2 próf búin af 5 .. 3 erfiðustu prófin voru í þessari viku.. stærðfræði á föstud. síðan verður næsta vika bara róleg og létt !!  

Síðan verður tekið veeeellll á því helgina 14. !!! :D:D úff það verður gaman, heldur manni gangandi ;)

En ég ætla að halda áfram með stærðfræðina ... !

Gangi ykkur vel í prófunum,

 Kv.Magna Ýr =)

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

29.11.2007 21:39:55 / magnayr

:)

Jæja þá er síðasti skóladagurinn búinn, frekar næs... Þessi vika er búin að vera frekar mikið tjill... vorum vel stödd í öllum fögunum svo það var bara upprifjun,frí,kaffihús eða spurningakeppni þessa í tímum.
Égvar búin að taka öll prófin í leikfimi svo í dag var ég búin í skólanum rétt fyrir 11, eftir það fórum við Andrea uppá Þjóðarbókhlöðu að læra, fyrir söguprófið.. Ekkert smá duglegar:)

Á morgun eru litlu jólin í skólanum, margir búnir að skreyta stofurnar sínar og gera þær sætar. Margir ætla að vera með kósy stemmningu, hafa pakkaleiki, borða smákökur og hafa það nice. Ég held samt að ég beili og fari bara snemma uppá hlöðu að læra.

Það er kreeiiisí veður, skítakuldi og rokið er þvílikt. Væri ég til í að vera á Spáni núna eins og sumir.. mmm já 8|

Selma litla frænka mín.. er svo sæt þessi elska !! :D

Langaði að óska Leibba mínum til hamingju með daginn.. strákurinn orðinn tvítugur, ellismellur;)

 

Hahaha soldið gömul mynd !! :D

Jæja Karen mín ég lofaði þér að koma með nokkrar myndir og jújú ég á að vera læra en ákvað að finna nokkrar myndir af okkur úr ferðalögunum okkar haha:D

 

Kvöldið sem við týndumst í Berlín haha.. létum það ekki á okkur fá og skemmtum okkur konunglega á leiðinni heim:)

Apr 7, 2007

Apr 7, 2007

Opnunarhátíðin í grikkland þegar við SKÖLLUÐUM hvor aðra, ekkert lítið fast og fengum hláturskast sem andaði ég veit ekki hvað lengi hehe:D

Já við ekkert lítið spenntar að keppa í fyrsta sinn saman í tvímenningnum !! :D spiluðum með tröllabarninu frá Estonia á setti...

Skemmtilegasta sundferð sem ég hef farið í... var eendalaust hlegið !:D

THE snjóhús !! :D haha laang flottasta snjóhúsið.. og flottustu keppendurnir ! :D

hahahah síðan ákvað ég að koma með eina gamla hérna í endan;) hversu sætar erum við Karen Rut !! :D Jæja vona að þetta hafi verið nóg af myndum fyrir þig ;)

En ég ætla halda áfram að lesa um endurreisnina,grikki,rómverja og allt þetta lið ;)

Svo ég kveð að sinni ... :D

 Kv.Magna Ýr

 

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

26.11.2007 23:58:57 / magnayr

Styttist í jólin :D

VIKA Í PRÓF

Já þessi vika er eiginlega bara mikil tjill vika í skólanum en maður verður að vera duglegur eftir skóla að læra því eins og ég sagði vika í prófin !

Ætli maður fari ekki að skella sér uppá hlöðu eftir skóla núna á miðvikud. og fari að byrja læra.. víhú..

Hvað ætli ég verði hútt á yfir þessi próf.. síðustu jól var það jólaöl, magic, vínber og daim .. Ég bíð spennt eftir að komast að því.. ætla samt að reyna vera dugleg að borða hollt útaf átakinu okkar Kisu ;)

En annars var helgin róleg.. var að vinna alla helgina og kreisí mikið að gera.. hvernig nennir fólk að hanga í BYKO um helgar... Á föstud. hitti ég gömlu Bykofélagana, var ekkert smá gaman að sjá þau, við enduðum á einhverjum karókíbar og ég hef sjaldan hlegið jafn mikið.. takk fyrir kvöldið ! :)

Laugardeginum eyddi ég með móður minni... langt síðan við áttum svona kósý kvöld.. :)

Maður er farinn að heyra í jóalögunum í útvarpinu.. mér finnst það voða indælt, maður kemst alveg í einhvern annan gír..

Ég ætla að henda mér undir sæng og fara glápa á FRIENDS :)

Hafið það gott,

Kv.Magna Ýr ;)


» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 12