Veiiiiii... !!! Það er bara 1 próf eftir !! vávívává
Eftir prófið í gær ætlaði ég að fara beinustu leið heim að sofa, því ég var bara búin að sofa 2 tíma um nóttina.. ég hlakkaði ekkert smáá en síðan gat ég bara ekkert sofið !! reyndi í 4 tíma, lá uppí sófa en neeiii ...
Klukkan hálf 6 skelltum við Valkyrjur okkur uppá Skaga.. veðrið var fínt og unnum við leikinn 16,5 - 3, 5 .. hefðum nú ekki átt að missa svona mörg stig en engin af okkur var að spila eitthvað vel svo í rauninni var þetta ágætt bara... Þegar við vorum á leiðinni heim skall á þetta skelfilega veður... án gríns ég var drulluhrædd... hélt að bíllinn ætlaði bara að fjúka .. við héldum nú samt að þetta væri í lagi og héldum áfram, en allt í einu kom þessi svaka kviða og bíllinn næstum búinn að velta þá ákváðum við að fara bakvið einhverja bensín stöð í "skjól".. sem betur fer fattaði Lísa að vink. hennar væri nýflutt á Kjalarnesið svo hún bjargaði okkur og vorum við fastar þar í 4 tíma í þessu kreisi veðri !!
Okkur Dagný leiddist svo að við ákváðum að skella okkur út í þetta veður meðan við vorum að bíða að fá að komast í bæinn... ég hef sjaldan hlegið svona mikið.. það var bara erfitt að standa í lappirnar útaf vindinum og rigningunni..
En jæja.. ég ætla að fara læra.. sit uppá hlöðu og er ekki búin að gera neitt síðan ég kom hingað
Til hamingju allir sem eru búnir í prófum og hinir ... það er lítið eftir !!!
Kv.Magna Ýr

Ein gömul af mér og Hafþóri þegar var verið að vígja mig inní landsliðið !