Magna Ýr

Brostu, það fer þér betur ;)

30.08.2005 23:08:50 / magnayr

HoLa ;)

Oki.. vá vá vá ! Ballið í gær var einum of skemmtilegt ;) Byrjaði á því að rölta til Vanessu og þaðan fórum við heim til Ása í fyrirpartyið þar ! J það var bara fínt, fólk að byrja koma sér í gírinn svo uppur hálf 11 – 11 fór fólk að skella sér nirri bæ á Naza !:) Það var svo gaman að sjá alla krakkana aftur ! ! J shitturinn.. og við dönsuðum öll úr okkur vitið ! ! haha ég og Unnar vorum sérstaklega að meika það þarna a dansgólfinu og ætlum við að verða flott á Verzloböllunum í vetur ;)(H) ekki satt???;) een svo eftir ballið skutluðu Hjöbbi og Sindri okkur stelpunum til Ása eða mer,beggu og Telmu ! :D En þetta var æðislega gaman :*:*

 

 



Í morgun vaknaði marr freekkar úldin og fyrsti tíminn var leikfimi... vúhú ! Kerlingin þar er sko ekkert að spara það og var bara vel tekið á ;) ekki slæmt..

Kennararnir eru heldur ekkert að spara heimanámið... marr er alveg að drukkna hérna :O en þetta er þess virði ;) Ég er samt ekkert að skilja í þessari bókfærslu :$ vonandi kemur það með tímanum eenn er samt farin að vera svolítið hrædd um að dragast aftur úr :$ Eenn allavega... svo var ég bara á röltinu á leið í stofuna mína þegar einhverjir strákar báðu mig um að koma með sér í eitthvað herb., eg var nú ekkert alltof sátt við það en fór samt og vildu þeir þá fá að taka myndir af mer fyrir eitt af skólablöðunum. E-ð fannst mer þetta nú asnalegt:S og vandræðilegt en hvað um það... reyndar hrasaði ég og náðu þeir mynd af því :S :$ alltaf jafn misheppnuð :S hahah en það er bara fyndið :$

 

 



Á miðvikudaginn eftir viku byrja keiluæfingarnar:D váá hvað ég hlakka til.. samt gegt stressandi þar sem marr þekkir engan gegt vel og ef marr þekkir einhvern þá já... skiptir ekki J en ég er s.s. spennt og stressuð ;)

 

 



En ætla nú ekki að hafa þetta lengra í bili !

 

 



Magna Ýr kveður :klikk:


» 4 hafa sagt sína skoðun

27.08.2005 20:48:28 / magnayr

Við sýndum það og sönnuðum hvaða lið væri STÓRVELDIÐ í Kópavoginum ;)

Já þessi skólavika er búin að vera eins og eldflaug að líða ! :) Var mjög skemmtileg og er maður að ná að kynnast krökkunum í bekknum alltaf betur og betur ! :) Því miður ákvað Baldvin að flýja okkur og hætta bara og fór kallinn í FG vonandi er bara gaman hjá honum þar ;)

En við fórum í fyrsta Verzlópartyið í gær ! Það var bara mjög gaman þar, var í sal á Seltjarnarnesi... ég og Mæja fórum fyrst til Andreu og það í partyið ! :)

Í dag kom Stenni pabbi að sækja mig... við náðum í Eirík og fórum við á Kaffihús ásamt vini hans pabba ! :) síðan fórum við og fengum okkur Hagamelsís ;) bara góður sko  ! !

Eftir það fór ég að kveðja hann Jóa ! Kallinn er að fara flytja til Englands 8| haha skrítið... þótt marr sé ekkert búinn að vera mikið að hanga með honum uppá síðkastið vorum við nú alveg bestu vinir þegar við vorum yngri ! En hafðu það bara gott þarna úti Jói minn:*:* Ég mun sakna þín:)

Klukkan 6 byrjaði Kópavogsslagurinn á milli okkar og HK :) Við ætluðum að ýta þeim niður um deild og syna hvaða lið er Stórveldið í Kópavogi.. og gerðum við það ! :D Við unnumn þær 8-2 á Kópavogsvellinum ;) ekki leiðinlegt get ég sagt ykkur ! :D

Ég ákvað að breyta lúkkinu á síðunni minni ! :D hafa það í Blikalitunum hohoh ;) 

Í kvöld ætlum við keilukrakkarnir að hittast;) ég,róbert,karen,Jón Ingi og Stebbi :D eeeennn allaveg:D ég er hætt þessu böbbli...

Kv.Magna Ýr :klikk:


» 1 hafa sagt sína skoðun

24.08.2005 23:57:40 / magnayr

Breiðablik-Haukar ! :D

Jæja.. þá er annar dagurinn í Verzlunarskólanum búinn :) Þetta er bara fínt skomm... í gær þorði eiginlega enginn að segja neitt maður rétt svo talaði e-ð við þann sem settist við hliðiná manni en í dag urðum við örlítið opnari eftir að þessi snilldar þýsku kennari kom inn og braut ísinn.. og lét okkur öll syngja saman á þýsku og babbla e-ð á þýsku ! Þar sem þetta var nú fyrsta sinn sem ég fer í tíma í þessu tungumáli og ekki bara ég heldur líka flest allir þarna inni þá var þetta frekar skrautlegt og ekki var hún nú skárri ! :D:D en ég held að þessi gamla kempa eigi eftir að halda stuðinu uppí í vetur...:lol: allavega hlakka ég til næsta tíma hjá henni ! :)

Þessi skóli er samt alveg freeekkkaarrr stór ! :S og hefur það gerst aðeins of oft að ég sé búin að labba í hringi og enda alltaf á sama stað ! haha... marr er nú ekkert að láta mikið fyrir sér fara og læðist maður þarna framhjá veggjunum ! :) Algjör lúðabusi ! ! :$:lol: en þetta er allt að koma hjá manni :P

Á morgun erum við að fara keppa við Hauka. Ef við vinnum þær erum við öruggar í úrslitaleikinn á Íslandsmeistaramótinu;) sem er nú alls ekki slæmt skal ég segja ykkur !

Keppti í keilu í dag;) gekk bara ágætlega spilaði 163 í meðaltal. Vann samt í happdrættinu og vann snyrtivörur ;) ekki slæmt ! :)

En ég ætla að fara sofa svo maður vakni nú á morgun ! :)

Kv.

Magna Ýr :klikk:


» 3 hafa sagt sína skoðun

22.08.2005 15:53:59 / magnayr

"Þið klárið svo bara verk. 1 heima" , "það verður próf í þessari viku í ísl."

Jæææjjja :P Heyrðu svo ég byrji nú bara aðeins að segja frá helginni.. á föstudeginum fór ég með vinnunni í keilu og sonna ;) það var bara mjög fínt og ætla ég að setja inn myndir þaðan fljótlega :D

Laugardeginum var ég að vinna bara stutt, fór svo að keppa.... Unnum ÍBV 7-0 :) Um kvöldið fór ég útað borða með Birnu og skelltum við okkur svo niðrí bæ og þaðan e-ð aðeins í party til Ásdísar ! :)

Í gær var ég bara að vinna og þetta var síðasti vinnudagurinn minn ;) frekar nice ! :P

En í dag já.. var skólasetning hjá Verzlunarskóla Íslands:P Þetta var heavy skrítið skohh :$ að vera nýr og vita ekkert í sinn haus hvort marr ætti að labba til hægri eða vinstri :$:D

En bekkurinn minn var bara mjög fínn ! Baldvin var sá eini sem ég þekkti nema jú bróðir hennar Bertu hann Gabríel var lika með mer :P en vonandi eigum við bara öll eftir að kynnast fljótlega ;) En jáa.. bókfærslu kennarinn var bara ekkert að spara það og setti okkur bara fyrir morgundaginn  :S og ég hef aldrei verið í bókfærslu áður svo ég veit ekkert hvað ég á að gera haha.. Já og ekki má gleyma því að það verður próf í íslensku í vikunni ! hahah.. þetta er bara brjálæði ! en ég ætla að fara finna e-ð útur þessari bókfærslu :P

Kv.Magna Ýr :klikk:


» 4 hafa sagt sína skoðun

19.08.2005 00:00:38 / magnayr

Erum komnar í úrslit:D:P

  • Við unnum Val 4-1 og erum núefstar í riðlinum en erum samt búnar að keppa 2 leikjum færri en hin liðin !:D
  • Við unnum GRV í kvöld 3-0 og með þessum sigri tryggðum við okkur sæti í úrslitum í Bikarnum :D:lol:
  • Mín skellti sér í klippingu í fríinu...
  • Fékk pínu sjokk en er búin að venjast þessu núna !
  • Hitti Bertu og Ólöfu líka í fríinu :D
  • Var farin að sakna þeirra mjög mikið ! !
  • Ætlum að fara hittast oftar, gengur ekki svona lengur:D:$
  • 4 dagar í skólann !
  • Ég er að farast úr spennu
  • Vinnufólkið er að verða vitlaust á þessari spennu og heldur að ég sé geðveik :S
  • Allir að hætta í vinnunni :(
  • Björg ætlar að reyna vera kúl og hætta líka..
  • Það er að mistakast hjá henni hohoho
  • Leibbi kominn með tímabundnaheimasíðu
  • www.blog.central.is/leifurel
  • Endilega tékkið....
  • Ég og Birna fórum á kaffihús í gær !
  • Takk fyrir kvöldið sæta;) gaman að sjá þig ! !

Og ég ætla að segja þetta gott í bili... er orðin soldið þreytt !:)

Kv.Magna Ýr :klikk:


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.08.2005 22:56:07 / magnayr

úff... 8 dagar :P

Vá hvað tíminn líður hratt ! 8| þetta er all svakalegt allt saman ! :) Þessi helgi er bara búin að vera asskoti fín !

Föstudagurinn : Ég fór með Birnu og Mæju á kaffihús eftir æfingu... það var bara mjög gaman, alltof langt síðan maður hefur hitt þessar pjásur ! Gat því miður ekki verið lengi með þeim því ég fór síðan í bíó með Róberti,Jóni Inga og Kareni Rut :) Fórum á The Island og hún var bara nokkuð góð ... hún var reyndar á frekar mikilli hreyfingu :$ æi get ekki útskýrt betur en ég fékk gegt illt í augun 8|:$:$ samt fín :) Eftir hana skelltum við okkur á Nonnabita :) mmm... ég dýrka þennan stað.. alltof langt síðan.. hef ekki farið síðan ég fór með jááá.. skiptir ekki :D Enduðum svo uppi Keilu í Öskjuhlíð.. mér er nú ekkert alltof vel við þann stað ;)

Laugardagurinn : Fór á fína æfingu í Sporthúsinu.. síðan kom systa heim.. alltaf gaman að sjá hana:D var að koma frá Spáni :P Síðan fór ég bara í matarboð með gamla settinu ;)

Sunnudagurinn : Fór að versla skólabækurnar með Róberti og Kareni ;) Skellti mér síðan á fótboltaæfingu og beint eftir hana fór ég á keiluæfingu með Jóni,Kareni og Róberti :) Nú verður maður að fara æfa sig miklu meira því deildin fer að byrja eftir rúman mánuð :S:)

Eenn á morgun erum við að fara keppa á móti Val ! ! Ef við vinnum þær þá erum við í góðum málum.. svo þið hugsið til okkar á morgun ;):D

En ætla hafa þetta gott í bili, verð að fara skipta um á rúminu hjá mer ! :D

Adios,

Magna Ýr :klikk:


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.08.2005 20:55:06 / magnayr

3-1 ;)

Ég hef voðalega lítið að segja núna ¨! ! nema ég var í fríi í dag og í gær ! :) heavy nice :D Vaknaði reyndar klukkan 15:53 í dag:$:$ Hef aldrei sofið svona lengi og var í fári... Karen gisti hjá mér í nótt þessi elska :D En ég fór reyndar til Tannsa í morgun kl.9 og var ekki búin að fara í 2 og hálft ár 8|8| og var það annað sjokkið mitt í dag ;) en ég var ekki með neina holu og tennurnar í góðu standi 8)8) þannig ég er bara góð skomm !

En í gær fór ég heim til Bjargar að ná í bækurnar sem hún ætlar að selja mér ! :) Svo kom Leibbi og við náðum að vera í pínustund með honum þar sem hann stakk af til USA í dag ! en við náðum að kveðja þessa elsku :*:* Létum hann fá kveðjugjöfina hans sem er náttúrulega bara snilld ! ! :d  Gangi þér sem allra best þarna úti og sjáumst fersk eftir 355 daga 8):S Nei nei... þetta verður fljótt að líða :)

Um 5 leytið lögðum við stelpurnar af stað til Keflavíkur ! ! Því við áttum að keppa þar kl.7 ! Þetta var hörkuleikur því þær eru toppnum þessar ungu stúlkur og ætluðum við okkur að vinna þær, við vissum að þær myndu koma brjálaðar i þennan leik því þær höfðu tapað sínum fyrsta leik, leiknum á undan þessum ! og viti menn við unnum 3-1 :):P Við sýndum samt alls ekki okkar bestu hlið þarna en allavega nóg til að vinna.. :D;) Ég þurfti samt endilega að fá boltan í nefið aftur:( ég er samt lítið bólgin og bara frekar aum...

En já... djö... er þessi skóli dýr marr:S shæzz.... 66 þúsund kall í skólann og eg er búin að eyða 25000 kalli í skólabækur og nokkuð mikið eftir ! 8| haha þetta er aðeins meira en 3500 kr. sem maður eyddi í skólabækur í grunnskóla :)

En VÁ hvað ég hlakka óendanlega mikið til... bara 11 dagar ! :)

En jaa.... ég er hætt þessu bulli....

Kv.

Magna Ýr :klikk:


» 9 hafa sagt sína skoðun

08.08.2005 17:14:11 / magnayr

Jájájá þetta stefnir í rétta átt ! :)

Já ég hef verið að vinna í einu í allt sumar ! Og því "verkefni" er lokið.. ég áttaði mig á því um helgina ! ! og ég veit að Karen mun vera MJÖG fegin haha.. því hún hefur hjálpað mér með þetta mikið í sumar ;) takk ástin :*:*

En já helgin var bara fín ! á fimmtud. fór ég að hitta Björgu og Kollu eftir fótb.æfingu ! Við vorum að vinna aðeins í kveðjugjöfinni hans Leifs ! :) Eftir það skelltum við okkur á Brennsluna og fengum okkur Natsjós:D;) it vos verí gúd :d

Á föstud. var ég í fríi... ég skellti mér á góða æf. í Sporthúsinu ! Eftir hana kom Leibbi að sækja mig, við skelltum okkur uppi Byko svo var leiðinni haldið á keiluæf. :D Ég ætlaði fyrst bara ein en Stebbi vildi ekki að ég myndi æfa ein svo hann kom með mér ;) algjört krútt :D:P Ég fór bara snemma að sofa því ég þurfti að vakna kl.05 um nóttina að bera út fyrir Bertu !

Já eins og ég sagði þá vaknaði eg klukkan 5 og fór að bera út... það gekk nú bara svona upp og niður og ætla ég ekkert frekar að fara nánar úti það ;)8)8) ég var búin uppúr 7-hálf 8 og dúllaði mér bara þangað til ég átti að mæta í vinnu kl.09-18 og eftir það fór ég aftur að bera út, en þá gekk það aðeins betur ;) Um kvöldið skellti ég mer til Bjargar og ´tok mig til með henni og Önnu fyrir kvöldið... eða s.s. kveðjupartyið hans Leibba ! :) Það var hörkustuð þar ;) Þegar við ætluðum svo að fara heim í leigubíl.. náðum við ekki í gegn og héldum við að við þyrftum að labba heim8) En Boði reddaði okkur og skutlaði okkur heim ! :) Takk kærlega fyrir það :*

Ég var bara að vinna á sunnud... ég og Björg skemmtum okkur Konunglega í vinnunni.. eins og alltaf...:$ ;) ekki satt ?? :D Og fór svo bara á fótb.æfingu um kvöldið ;)

En já... ég fer að verða duglegri að setja nýjar myndir inn.. en það eru samt einhverjar nýjar komnar ! !

En ætli ég segi þetta bara ekki gott í bili...

 Kv.Magna :klikk:


» 6 hafa sagt sína skoðun

06.08.2005 19:06:08 / magnayr

Nújar Myndir

Nokkrar myndir frá Verslunarmannahelginni ;) Koma fl. seinna ! :D

Kv.Magna Blaðberinn hinn mikli :haha:


» 62 hafa sagt sína skoðun

03.08.2005 00:47:28 / magnayr

20 dagar í Menntó ;) úfff:P

Jæja people ;) haha.. jæja soldið síðan að ég hef bloggað enda nóg búið að vera gerast :D

  • Fyrst langar mig að óska Pabba gamla innilega til hamingju með daginn þann 29. Júlí ... :D
  • Í öðru lagi þá langar mig að óska Vigni og Sólveigu Ástu líka innilega til hamingju með daginn í dag þann 2 águst ... :D
  • Og í þriðja lagi langar mig að óska Gylfa innilega til hamingju með daginn þann 3 águst ;)

-Innilega til hamingju öll sömul með daginn og vonandi var/verður hann mjög góður ;)

En allavega ! Verslunarmannahelgin var mjög skemmtileg, föstudaginn var ég nú bara heima... eins og ég sagði hér fyrir ofan þá varð pabbi 45 og var matarboð að hætti Mömmu:p og það get ég sagt ykkur að það klikkar aldrei ! :D Um kvöldið kom Sólveig til mín og við fórum e-ð aðeins út ! Hittum Mæju og Guðrúnu, ætluðum til Hrannars en hann bailaði pungurinn *ull* haha nei djók þúrt æði... þetta var víst misskilningur ! :)

En á laugardeginum fórum við mamma bara snemma af stað til Akureyrar:) vorum með Jet black Joe og Sixties í botni:P geggjað stuð !  Stoppuðum hjá Ömmu sætu á Blönduós... alltaf jafn gaman að sjá þessa elsku ! Elska'ðig amma mín :*:*

Svo brunuðum við til Akureyrar ! :) Komum okkur fyrir hjá Vordísi vinkonu mömmu og svo fór ég að hitta Jónu og vini hennar ! Kvöldið var ekki alveg eins og ég var búin að búast við en endaði samt vel ;) Hitti Arndísi og kærastann hennar og var e-ð að dandalast með þeim :)

Sunnudagurinn var bara hrein snilld:p hitti Byko-fólkið og Írisi skvísu og var með þeim allt kvöldið :D

  • Íris Björk grillaði mais handa mér.. mjög góður... takk Iris mín.
  • Lalli og Hrefna Dís voru ekki mikið fyrir samræður við annað fólk þetta kvöldið, höfðu víst e-ð annað mikilvægara að gera :$
  • Marta var sko með GAT í klofinu og ég held að allir hafi áttað sig á því
  • Ég og Villi náðum að plata Írisi til að fá sér tattoo eftir að hún var búin að daðra við tattookellurnar og gefa þeim klósettpappir ;) how sexy ;)
  • Við náðum ekki öllum brekkusöngnum en bjuggum bara til okkar eigin á leiðinni í staðinn :D
  • Við sáum Ghostbusters-bílinn ;) geggjaður...
  • ALLT í slagsmálum þarna:S
  • Löggan stóð sig vel og passaði allt og alla:)
  • Leibbi beilaði :( *snökkt*
  • Ég eignaðist nýja vini, bæði dyraverði og fl.
  • Misskilningur átti sér stað sem ég vil að sumir leiðrétti:klikk:

En já á leiðinni heim þá sá ég fugl deyja:S og ég fékk sjokk.. hann flaug á bílinn á móti okkur og fékk í magann ! Guð hvað ég vorkenndi greyinu :S:s

Það eru 9 dagar þangað til litla YNDIÐ mitt er að stinga af til USA :( Össhh.. hlakka ekki til... ! :D en því fyrr sem þú ferð því fyrr kemuru heim :P;)

En Myndir Eru Væntanlegar Af Helginni ;) Endilega tjékkið á þessu bráðlega:P Skrifið í gestbók og skoðanir ef það er e-ð sem þið viljið tjá ykkur um ! :D

Ég ætla að hafa þetta gott í bili :)

Kv.Magna Ýr :klikk:


» 10 hafa sagt sína skoðun