Jááa.. soldið langt síðan maður skrifaði síðast .. eenn seint er betra en aldrei Svo ég tileinka þessari færslu henni Vanessu minni þar sem hún er eina manneskjan sem skoðar síðuna ennþá
Allavega þá er maður kominn heim frá Japan og þetta var nú meiri upplifunin ! Algjör snilld !! Var komið fram við okkur eins og drottningar allan tímann! Vorum keyrðar um á þvílíkum Benz á meðan strákarnir þurftu alltaf að vera á einhverskonar langferðabíl fyrir aftan okkur hehe Við byrjuðum á því að fara og skoða einhvern matarmarkað síðan fórum við í hádegismat.. fórum á einhvern þvílikt flottan stað sem var á 6 hæð og útsýni yfir allt.. við fórum inní e-ð þvílíkt flott VIP herbergi sem kokkarnir elduðu fyrir framan okkur 3ja rétta máltíð.. geggjað gott ! eigandinn borðaði með okkur og spjallaði við okkur... það var alltaf verið að taka upp fyrir auglýsinguna og þáttinn.. og þar sem þeim fannst ég vera með mjög góðan japanskan hreim þurfti ég alltaf að leiða borðsöng á japönsku og ekki mátti gleyma hreyfingunum sem fylgdu með .. hehe.. þetta var já vandræðilegt en fyndið samt sem áður !
Hótelið var geggjað sem við vorum á.. Keisarinn gistir víst alltaf þarna þegar hann kemur í bæinn.. við máttum ekki snerta töskurnar okkur því það var þjónn sem bar þetta allt upp fyrir okkur.. við hálf vorkenndum greyinu því keilukúlurnar eru ekkert svo léttar !! við gáfum honum alltaf þjórfé í hvert skipti sem tíðkast ekkert þarna úti og hann var svo ánægður að hann hneygði sig svona 8x á leiðinni útur herberginu.. haha algjört rassgat En já keilusalirnir þarna voru mjög flottir, geðveikt að spila á þeim, olían góð og stigbrautirnar líka en þar sem þið skiljið EKKERT hvað ég er að tala um þá skal ég hætta en auglýsingin var tekin upp í keilusalnum..
Eftir keiluna vorum klæddar uppí svona Kimono .. fórum fyrst í hárgreiðslu og síðan vorum við klæddar í Kimono-ið.. það tók c.a. 45 min. að koma okkur í þetta og það var strekkt og strekkt og strekkt og strekkt á maganum á okkur.. og endalaust var bætt við af bómul eða einhverjum slæðum eða hvað þetta er.. svo var myndataka..
Eftir hana fórum við á Sushistað og þurftum að vera í þessu Kimonoi þar, við fengum þvílíkan mat voru c.a. 30 réttir bornir fram úff.. ég fékk sko alveg nóg af Sushi eftir þetta kvöld. Fórum líka í e-ð VIP herbergi þarna sem maður þurfti að fara úr skónum og sitja á svona pullum, allt úti perlum og e-ð.. mjög skrítið en mjög flott líka.. svo fengum við þvílíkt flott armband úr kristalperlum frá eigandanum af þeim stað, mitt táknar "ástarsamband" hehe.. hann sagði að það kæmi fyrr en ég ætti von á svo nú bara bíður maður spenntur hehe .. eftir matinn fórum við inní eldhús og Dagný bjó til Sushi og ég þurfti að borða það, herregud ég fékk sko í magann þegar ég heyrði það því ég var alveg komin með uppí kok eenn það sem þeir voru með myndavélina á lofti þurfti ég að borða þetta ... þvílíkt stóran óeldaðan lax með sojasósu(sem ég btw borða ekki) ég stakk þessum ógeðslega bita uppí mig og myndavélin beint framan í mér.. og ég byrja að kúgast og kúgast.. en ég reyni að brosa og segja "maajuu" sem þýðir gómsætt á japönsku.. en ég held áfram að kúgast eenn á endanum næ ég að kyngja þessu..
Ég og Dagný í Kimonoinu
En já þá var klukkin orðin rumlega 1 um nóttina og við orðnar vel þreyttar eftir að hafa vakað í tæpa 40 tíma því við sofnuðum ekkert á leiðinni út.. þannig við fengum 2 japanskar nuddkonur uppá hótelherbergi til okkar og sofnuðum útfrá nuddi.. verð nú að segja að það var mjögg gott..
Svo var bara haldið heim daginn eftir.. langt ferðalag á stuttum tíma en verð nú að segja að þetta var alveg þess virði og heavy gaman Það koma myndir seinna þegar ég fæ þær
En allavega þá er mín komin á bílpróf ljónið er komið á veginn vá get ekki einu sinni lýst því hversu notalegt þetta er.. en ég þarf nú samt að venjast þessu kemur alveg fyrir að maður drepi á honum á ljósum en þetta er allt að koma
Sæti bíllinn minn
Allavega.. góða skemmtun um helgina !!!
Kv.Magna Driver
» 26 hafa sagt sína skoðun
Heyrðu jáa.. ég sit hérna og er að læra undir bóklega prófið ! ! úff þetta er nú meira stressið sem fylgir þessu öllu saman.. ég verð að ná þessu bölvaða prófi.. er búin að fá nóg af því að redda mér fari og einhverju veseni !!
Þessi helgi er bara búin að vera róleg og mun bara vera róleg þar sem MK-ballið er á þriðjud. og fyrirpartýið hjá Beggu og Samma verður fyrir það ! þetta verður tær snilld.. við stelpurnar ætlum að byrja hjá mér og verða blekó allavega hjá sumum
Vona nú samt að það kvöldið endi ekki svona
en ætli maður þurfi ekki að fara drífa sig að halda áframa ð læra !
Kv.Magna Ýr
» 4 hafa sagt sína skoðun