Magna Ýr

Brostu, það fer þér betur ;)

30.06.2006 20:42:38 / magnayr

Sverige á morgun !! :)

Sæl öll sömul..

Heyrðu þá er fyrsta vinnuvikan mín búin...hún var bara nokkuð fín, reyndar pínu erfið ... viðurkenni það en peninganna virði !! :) shiiii mín verður rík þegar hún kemur heim:P:P

Hahaha haldiði að kellu hafi ekki bara verið boðið á 2 date í vinnunni í dag :D fannst það nokkuð fyndið...og ég er búin að komast að því að flugur eru HEIMSKUSTU kvikindi sem til eru á veröldinni... hvert einasta sinn sem ég er búin að hjóla heim úr vinnunni lít ég út eins og flugnakirkjugarður... þessa heimsku flugur fljúga bara á mann og steindrepast... :$ pff...

Jæja núna eru allir að fara til Ólafsvíkur :( ;) skemmtið ykkur ótrúlega vel, langar bara pínu,pínu,pínu lítið mikið að fara með ;) eeennn það kemur annað ár eftir þetta;)

Svo er það Robbie á sunnud. jesús maría og öll hin jarðarberin.... ég hlakka óendalega mikið til :D Fer í Liseberg tívolíð á morgun og svona.. spáð 23-25 stiga hita alla helgina;) ekki slæmt :P

En jæja.. ég ætla að fara koma mér í háttinn, þarf að vakna klukkan 5 til að ná einhverjum miðum í ferjuna, gaman, gaman :$

Og já Gréta... Mér lýst mjög vel á þetta frænku og frænda partý... ;) verðum í bandi :*

Kv.Magna Ýr

GO ENGLAND !!!!!

Einum of heitur.. ;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

23.06.2006 13:59:06 / magnayr

23 juni ;)

Hæhæ !! :)

Ég frétti að veðrið heima væri farið að vera betra;) gaman að heyra það ... :) Það er bara búið að vera rigning hér þessa vikuna nema í dag, kom sólin aftur ...

Hahaha ég var að lesa norska séð og heyrt og það var keppni annað hvort hér eða í DK man ekki alveg og þá var verið að segja frá Fegurðarsamkeppni en ekki venjulegri fegurðarsamkeppni heldur XXL hehehe:D já þetta var XXL fegurðarsamkeppni :D hvar hættir þetta?? hehe mér fannst þetta frekar fyndið !! :)

Jæja ég er byrjuð að æfa aftur ... vá það er svo gaman, var ekki búin að kasta í rúmar 6 vikur.. :) eigandinn er ekkert smá almennilegur, fæ að æfa a lægra verði og ef það er of þurrt þá olíber hann fyrir mig :) en nóg um það því þið skiljið ekkert um hvað ég er að tala !! :)

Hehehe auglýsingarnar hérna eru svo fyndnar, ég skemmti mér alveg konunglega yfir þeim haha :)

En í kvöld ætla ég að tékka á næturlífinu hérna í Noregi ;)

En nóg í bili...

Kv.Magna Ýr :*


» 6 hafa sagt sína skoðun

14.06.2006 21:06:05 / magnayr

Iceland 2 points !

Sæl... Fyrst langaði mig að óska henni Guðrúnu syss til hamingju með 23 ára afmælið, elska þig í tætlur :*:*

Af mér er allt gott að frétta hér í Norge.. veðrið er bara búið að vera yndi, 23-30° stig allan tímann og á víst ekkert að fara breytast ef marka má veðurspánna rétt ! :)

Fyrsti vinnudagurinn var í dag og er ég að þrífa svona kjötverksmiðju eins og ALI.. eitt skal ég segja ykkur að eftir þessa sjón mun pylsa ekki vera í miklu uppáhaldi hjá mér!! :$ En já konan sem ég er að taka við af kann bara norsku og ekki stakt orð í ensku.. svo samskiptin voru frekar skrautleg okkar á milli.. hehe:D hún bara spjallaði og spjallaði á norsku og ég skyldi c.a. 40% af því sem hún sagði og svo var ég e-ð að reyna að tala á dönsku en hún skyldi c.a. 15% af því sem ég reyndi að drulla útúr mér hehe svo endaði alltaf með því að ég var farin að tala ensku án þess að ég fattaði það og hún bara horfði á mig "ohh jeg forstår ikke " hehehehe:haha::haha: svo hló ég bara og hún greyið skyldi ekki neitt !:D

Ég hitti Svein Åke vin minn á mánudaginn.. var mjög gaman fór aðeins að versla og fórum svo í blak með vinum hans á ströndinni og vorum svo bara í sjónum og e-ð.. mjög gaman..

Ég þarf að hjóla 22 km úr og í vinnu sem er bara mjög fín hreyfing:)

EKKI fá ykkur norska hamborgara þeir eru ógeð !!! steiktir uppúr kjötfarsi eða einhverju .. mæli ekki með þessu !! En allavega þá ætla ég a fara koma mér í háttinn, ætla að reyna vakna snemma og fara í sólbað ! :)

Kv.Magna Ýr ;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

11.06.2006 15:32:24 / magnayr

Noregur ! :)

Høj høj ;) núna er ég komin til Noregs ! :) Ferðin gekk mjög vel... í flugvélinni voru eintómir japanar og kínverjar og ekki minnkaði fjöldinn þegar ég kom á flugvöllinn í Oslo...en svo sem ekkert að því bara fyndið ! :)

Ég beið frekar lengi eftir töskunum mínum því að ég hélt að taskan mín hefði verið allt öðruvísi en hún var ... svo ég beið og beið skyldi ekkert af hverju þetta tók svona langan tíma.. en svo allt í einu fattaði ég að taskan mín var löngu komin svo ég tók hana og forðaði mér út..þegar ég kom svo út stóðu 2 stelpur með borða sem stóð "vil du gifte dig med mig" og svo fyrir framan stóð piltur með rós og beið ! :) Þetta fannst mér asskoti skondið svo við ákváðum að bíða aðeins því stelpan hliti að fara koma út og mig langaði svo að sjá hvernig hún myndi bregðast við..svo komu fullt af stelpum út en aldrei sú rétta..svo við nenntum ekki að bíða lengur, ég fór bara á klósettið og á meðan beið pabbi uppi.. þegar ég var búin á klóinu kallaði pabbi á mig ..neinei þá var þettaengin stelpa sem þeir voru að bíða eftir heldur strák og þeir voru hommar :) haha geðveikt krúttlegt ! :D

já það var hvorki meira né 28 stiga hiti sem tók á móti mér í Oslo..aðeinsheitara en á Íslandi ;) hehe.. Í dag var 22° stiga hiti... ég vaknaði um hálf 1 og fór sólbað ætlaði aðeins að leggjast niður og farasvo að bera a mig sólarvörn eenn neeeiiiijjj... mín sofnaði og vaknaði eftir 2 tíma eins og HUMAR ! :( þannig það er ekkert sólbað fyrir mig næstu daga :) hehe

En Linda konan hans pabba tók þá ákvörðun í gær þegar við vorum að horfa á HM að hún ætlaði að bjóða mér áROBBIE WILLIAMS tónleika 2júlí í Svíþjóð ! :D

Shit það verður vonandi geggjað gaman !!! :)

Ætluðum fyrst að fara á Sting en mig langaði frekar á Robbie :)

En ég ætla að fara útað hlaupa !!

Sé ykkur :*

Kv.Magna:klikk:


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.06.2006 22:57:24 / magnayr

:)

Jæja jæja.. núna eru bara nokkrir klukkutímar í stefnu ;) Þetta verður örugglega mjög gaman.. er farin að hlakka til að hitta, pabba,lindu,magga, åke og fredrik :D Pabbi búinn að tengja sjónvarpið þannig að við rennum beint í Englandsleikinn á morgun þegar ég kem.. veðrið þarna er víst að verða betra og betra.. er 20-25° hiti núna og er spáð 30° stigum í næstu viku... Ekki veitti mér af með mína hvítu húð :$;)

En núna er allt í húsinu að verða reddý... pabbi er hérna á fullu að klára sjónvarpsherbergið.. var verið að setja flatskjáinn og heimabíóið upp og verð ég nú að segja að þetta er tær snilld !!:D

Þá er HM byrjað.. ég held með Englandi !!:D

Stebbi bauð mér,Karen og Hafþóri á Bubba tónleikana núna síðast liðinn þriðjud. og vávává.. hvað það var óendanlega gaman.. maðurinn er svö töff.. hann hækkaði sko mikið í áliti hjá mér eftir þetta kvöld :) En það toppaði nú samt kvöldið að við vorum með VIP-passa;) frítt áfengi,matur og jesús.. það var súkkulaðiFOSS með fullt af jarðarberjum og ávöxtum í kring.. mmm.. e-ð sem maður sér ekki oft..
Langaði bara að þakka Stebba kærlega fyrir mig :* 

 En ég ætla að reyna vera dugleg að blogga á meðan.. en allavega þá ætla ég að kveðja klakann í 6 vikur ;) Fariði vel með ykkur stelpur mínar, enga vitleysu ;) á eftir að sakna ykkar !! :)

Kv.

Magna Ýr :klikk:


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.06.2006 16:37:36 / magnayr

HoLa ;)

Jæja jæja.. Nuna eru bara 6 dagar i stefnu.. össhh.. spennan i hamarki og kviðinn farinn að segja pinu til sin ;)

Þessi helgi var æðisleg.. a föstudeginum bauð eg stelpunum i mat og heppnaðist það bara agætlega :) allavega for engin með matareitrun heim og Berta min þurfti ekki að borða nestið sitt sem hun var buin að plana að koma með ;)  Stebbi og Siggi kiktu aðeins og forum við svo i e-ð party...

A laugardeginum var eg að vinna fra 11-16 og það var bara brjalæði allan timan.. :$ En allavega eftir vinnu skelltum við stelpurnar okkur i utilegu með Annel og Hilmari.. það var bara mjög gaman... var fullt af folki þarna og bara stuð ! Og ma til gamans geta að eg pissaði uti i fyrsta sinn .. mjöögg stolt af þvi ;)

Langaði bara að þakka stelpunum fyrir frabæra helgi :*:*

svo er planið bara að slappa af og e-ð i kvöld.. kannski að maður kikji i bio eða e-ð :) anyway..

See'ya !

Magna Yr :klikk:


» 1 hafa sagt sína skoðun