Jæja þá erum við komin til Finnlands

Ferðin gekk mjög vel út, þrátt fyrir að við höfum verið þrengstu vél sem ég hef á ævi minni stigið fæti inní.. en maður steinsofnaði svo þetta var ekki lengi að líða

Þegar við komum til Finnlands fórum við beint uppí keilusal að skila töskunum okkar og skoða salinn. VÁVÁVÁ... þessi salur er bara flottur og þvílíkt gott að spila þarna, tókum æfingu í gær, reyndar ekki á sama olíburði og verður í mótinu. Eftir æfingun í gær skelltum við okkur niðri bæ til að versla, en fundum ekki neitt... ljótasta HM búð sem ég hef séð á minni ævi... sáum samt reyndar svartan Superman dansandi á línu, gaman að segja frá því

Erum mikið búin að vera sitja niðri og spila gúrku og spjalla við krakkana frá hinum þjóðunum !
Núna var ég bara að koma úr morgunmat(sem var ekki góður)... við erum ekki að fara á official practice fyrr en 17:30, þannig við verðum bara í tjillinu í dag, förum uppí sal og spjalla við fólkið og svona
Allavega þá ætla ég ekki að hafa þetta lengra ...
(mamma mín það koma myndir seinna fyrir þig

lofjú)
Hafi það gott,
Kv.Magna Ýr Hjálmtýsdóttir